top of page

Heilaðu þitt innra barn

Mjúkt og öflugt heilunarferðalag á íslensku

10.000 íslenskar krónur
Hafnarbraut

Um ferðalagið

Í þessu ferðalagi förum við inn á við og hittum okkar innra barn, sem er sá hluti af okkur sem upplifði eitthvað sem það réði ekki við á sínum tíma. Með því að hitta það, hlusta á það og veita því stuðning í að heila það sem þarf að heila, upplifum við meiri einingu innra með okkur. Að við séum samkvæmari sjálfum okkur og tökumst við erfiðar aðstæður á betri hátt. Ef þú kannast við að ráða ekki við ákveðnar tilfinningar, bregðast við með reiði, fílu eða móðgun, flýja af hólmi þegar eitthvað verður erfitt eða jafnvel öskra, er það barnið innra með þér, sem tekur stjórnina. Ef þú ert tilbúin að hitta þitt innra barn, taka utan um það og styðja það í að fullorðnast í takt við þig og taka þannig öðrvísi á erfiðum aðstæðum og tilfinningum, er þetta ferðalag fyrir þig. Lengd: 1 klst. og 30 mín. Tungumál: Íslenska


Næstu tímar

bottom of page