

Frelsi frá innri sársauka
Kröftugt öndunarferðalag
Um ferðalagið
Markmiðið í þessu ferðalagi er að sleppa tökunum á föstum tilfinningum og hugsanavillum sem við höfum burðast með jafnvel frá barnæsku. Áföll geta verið allskonar og misstór en öll hafa þau áhrif á okkur, í þessu ferðalagi færðu tækifæri til að losa þig undan áhrifum þeirra og endurforrita hugann með jákvæðari og uppbyggilegri hugsunum sem stuðla að betri líðan. Ferðalagið sjálft tekur um 1 klst. og 30 mín. en gera má ráð fyrir að tíminn sé í heild um 2 klst. Fyrir hverja Fyrir þá sem þurfa stuðning við að sleppa tökunum á einhverju eins og erfiðum atburðum sem þeir hafa upplifað, neikvæðum tilfinningum eða losa sig við dómhörku gagnvart sjálfum sér eða öðrum. Fyrir þá sem eru tilbúnir að fyrirgefa sjálfum sér, elska sjálfan sig, samþykkja sig og upplifa umbreytingu á sínu lífi. Fyrir þá sem vilja tengjast sjálfum sér, fá dýpri skilning á lífi sínu og tilgangi. Það sem fólk hefur verið að upplifa í þessu ferðalagi: 1. Frelsi frá fortíðinni og áhrifum hennar sem aftrað viðkomandi frá því að þora að líða vel og lifa góðu lífi. 2. Losnað við líkamlega og andlega vanlíðan og upplifað léttir og opnun. 3. Að geta fyrirgefið sjálfum sér, elskað sig meira og samþykkt. Eignast þannig betra samband við sjálfan sig og aðra. 4. Jafnvægi og og innri styrk sem hjálpar til að takast á við áskoranir í lífinu með meiri yfirvegun. 5. Innri ró og frið sem stuðlar að betra lífi á allan hátt. 6. Andlegan þroska og vöxt með því að sleppa tökunum og opna þannig á meira rými fyrir nýja möguleika sem auka lífsfyllingu. Lengd: 1 klst. og 30 mín.









