top of page

Ég missti vinnuna mína


Sæl kæra sál,

Fyrir ári síðan missti ég vinnuna mína. Mér var sagt upp vegna ,,skipulagsbreytinga". Ég var verkefnastjóri í banka. Ég er með 16 ára starfsreynslu í banka og ekki orðin neitt svo gömul að ég væri farin að vera fyrir. En mér var sagt upp í fyrsta skipti á ævinni.

Ég hefði getað fundist þetta ósanngjarnt og velt mér upp úr þessu lengi, lengi. Gæti verið ennþá að velta mér upp úr þessu. En satt best að segja held ég að það hafi verið erfiðara fyrir yfirmann minn blessaðann að segja við mig að ég hann væri að segja mér upp en mig að taka við fréttunum.

Ég var búin að átta mig á fyrir all nokkru á þessum tímapunkti að minn tími í bankaheiminum væri liðin. Ég var einhvern veginn hætt að nærast og fannst ekki eins gaman eins og fyrir 10 árum.

Mig langaði að fara að gera eitthvað sem gæfi meira af sér fyrir aðra. Meira af kærleika og upplifa að sjá fólk heila sig, vaxa og líða vel innra með sér. Svo ég tel að þetta hafi verið það besta í stöðunni fyrir mig og fyrir þau.

Síðan þá er ég búin að vera að reyna að feta mig þá átt, að hjálpa öðrum á þann hátt sem mig langar svo mikið að gera. Að fólk finni frið innra með sér, upplifi þakklæti og ró. Að hjálpa fólki að finna kærleikann innra með sér og vera þar. Það er svo miklu betra og lífið verður svo miklu auðveldara.

Þetta ár er ekki búið að vera endilega auðvelt. Ég er búin að upplifa sorg, vanmátt og vera særð. Því þrátt fyrir að vera búin að stunda sjálfshjálp lengi og vera nokkuð góð í að hjálpa öðrum, verð ég aldrei búin að heila allt hja mér, við erum aldrei búin að því... en ef við tökum mesta ,,hauginn" og heilum hann, verðum við góð í að fara í gegnum sársauka og hann þarf ekki að vera lengi eða fara í biturð og setjast að í líkamanum okkar.

En ég er líka búin að upplifa fullt af kærleika, órjúfanlega vináttu, nýja vináttu og meira að segja ÁST, risastóra ást.

Ég er full af þakklæti og kærleika og ætla að vera það áfram. Því ef maður getur dvalið þar verður dagurinn svo miklu miklu auðveldari.

Knús til ykkar Björk Ben


39 views

Recent Posts

See All

留言


bottom of page