top of page

Oft er þörf en nú er nauðsyn!



Það er mikið af allskonar óvenjulegu í gangi um þessar mundir og stjörnuspekingar segja að það verði ekkert lát á því allt þetta ár.

 

Við upplifum eða heyrum um hamfarir, stríð og margt fleira sem við upplifum að við getum ekkert gert í, en samt erum við að sjálfsögðu, áhyggjufull og jafnvel hrædd. Okkur finnst þetta ósanngjarnt og við upplifum jafnvel algert vonleysi, af því við getum oft ekki gert neitt nema hlustað á fréttirnar og fylgst með.

 

En vissir þú að það er alls ekki hollt! Þetta vonleysi og þessi hræðsla fer inn í orkuna þína, huga þér og líkama og hefur alls ekki góð áhrif á þig né umhverfi þitt eða þína nánustu.

Taugar þenjast, líðan versnar og orkan verður þyngri. Að líða á þennan hátt í lengri tíma getur haft mikil neikvæð áhrif á heilsuna og það getur verið svo erfitt að komast út úr þessu.

 

Líf þitt stýrist af því hvað þú hugsar og hvernig myndirnar sem þú býrð til í huga þínum líta út.

 

Ég verð að segja þér að ég hreinlega upplifi mig fasta í þessu umhverfi sem kemur með lítið jákvætt inn í líf mitt. Ég er farin að kvíða þess að kveikja á fréttunum. Ég er farin að vera pirruð á köflum og finn fátt jákvætt til að tala um. Ég er jafnvel með smá samviskubit ef ég leyfi mér að hugsa um eitthvað jákvætt eða gleyma mér yfir gaman þætti, umhverfið er orðið svo þungt og það er svo margt sem við getum haft áhyggur af.

 

Ég er nefnilega komin með nóg og ég ætla að brjótast út úr þessu!

Ég ætla að hætta að velta mér upp úr því sem ég get ekki breytt eða haft áhrif á.

Ég ætla að koma mér í meiri meðvitund og passa betur hugsanir mínar, því ég veit að ef þær fá að grassera í svona umhverfi, verða þær neikvæðari og neikvæðari.

Ég ætla líka að losa mig við hindranir og takmarkandi hugsanamynstur sem er trufla mig og eru afleiðing af þessum ótta og áhyggjum sem eru búin að bora sér inn í líf mitt, algerlega án þess að ég áttaði mig á því.

 

Mig langar því að bjóða þér að vera með mér í mars !

 

Ég ætla að bjóða upp á FRÍTT 4 vikna námskeið í mars þar sem við förum saman í gegnum þessa vinnu. Að endurforrita huga okkar og læra að byrgja okkur fyrir neikvæðni og setja inn eitthvað uppbyggilegt í staðinn.

 

Það er sem betur fer fullt af fólki að rétta hjálparhönd í ástandinu sem er t.d. á Reykjanesi en mitt framlag er að reyna að hjálpa öllum sem vilja, að læra smá æðruleysi og vera uppbyggilegri, þótt það sé erfitt. Því sannleikurinn er sá að það er sama hvað við höfum miklar áhyggjur eða erum hrædd, við erum ekki að hjálpa neitt. Heldur hjálpum við miklu meira, ef við getum verið með létta orku og jákvæð innan um allt þetta erfiða sem við erum mörg að ganga í gegnum.

 

Ef þú þekkir einhverja sem þú heldur að myndu hafa gott af því að fara í gegnum þessar 4 vikur með mér líka, máttu endilega senda þeim þennan póst eða benda þeim á skráningarsíðuna fyrir FRÍA námskeiðið.

 

 

Ég vona að þú ætlir, sama hver staða þín er í dag, að vera með mér í Mars að magna upp jákvæða og uppbyggilega orku, því þannig getum við hjálpað saman að gera lífið bærilegra og betra!


Kærleikur og ljós

Björk Ben

24 views

Recent Posts

See All
bottom of page