

Að flýja innri sársauka og áhrif áfalla virkar ekki til lengdar og þú endar í þjáningu sem litar allt þitt líf.
Þú þarft að þora að mæta þínum lærdómi.
Ég leiði þig inn á við með hugleiðslu, öndun, djúpri skuggavinnu og vinnu með orku og innsæi. Þannig þú getir mætt því sem hefur verið falið, heilað sársaukann og tengst aftur þeirri dásamlegu og einstöku mannveru sem þú ert.
Ljósið er með þér og þú ert með ljósinu!
EF ÞÚ ERT TILBÚIN Í DJÚPA INNRI VINNU ER ÉG HÉR FYRIR ÞIG
01
Það sem við reynum að gleyma hverfur ekki
það býr í líkamanum okkar, í undirmeðvitundinni og hefur áhrif á hegðun, skoðanir og samskipti.

02
Heilun snýst ekki bara um að líða betur
Fyrst þurfum við að leyfa okkur að finna það sem við höfum reynt að forðast.

03
Við erum meira en hugurinn okkar
Við erum líkami, taugakerfi, orka, meðvitund og erum öll tengd hvert öðru og alheiminum.

DJÚP VINNA MEÐ HJARTANU, TENGING VIÐ INNSÆI OG ORKU ALHEIMSINS
Leiðir inn á við
KANNSKI ER KOMIN TÍMI TIL AÐ HÆTTA AÐ LEITA ÚT Á VIÐ OG FARA INN Á VIÐ

Ég er Björk Ben
Ég hef lengi haft áhuga á að skoða hvað er undiryfirborðinu og draga það fram í dagsljósið til að heila það. Sú vinna hefur leitt mig í gegnum að tileinka mér hugleiðslur, sómatíska öndunartækni, dáleiðslur, djúpa skuggavinnu, miðlun og orkuvinnu.
Í dag sameina ég reynslu. mína og þessar aðferðir til að hjálpa mér og öðrum að skilja sig betur, heila djúpan sársauka og nota leiðir við að sleppa tökunum af hömlum og hindrunum í lífinu.
Þú ert ekki brotin
Við erum öll komin í þennan heim til að takast á við erfiðleika til þess að læra af þeim og mastera hvernig við getum komist í gegnum þá án þess að enda í þjáningu eða hindrunum.
Okkur er ætlað að lifa í kærleika og einingu í stað ótta og sundrungs.
Ég veiti þér stuðning og skapa öruggt rými þar sem þú mátt vera þú án þess að upplifa dómhörku eða samanburð.
Ég hjálpa þér að skoða þína földu skugga og þú finnur eininguna og ljósið innra með þér aftur.








